Hringekjan í spilun

Í sumar kom út önnur sólóplata Gísla Þórs Ólafsson, Bláar raddir. Lag af plötunni, Hringekjan, er komið í spilun á Rás 2 og er hægt að kjósa það á Vinsældarlista Rásar 2 en þátturinn er sendur út á sunnudagskvöldum. Bláar raddir inniheldur lög Gísla Þórs við ljóð Geirlaugs Magnússonar úr bókinni Þrítengt sem kom út árið 1996.

HÉR er hægt að kjósa Hringekjuna hans Gísla og önnur uppáhaldslög og HÉR má heyra Hringekjuna:

Diskurinn er fáanlegur í Skagfirðingabúð, á hárstofunni Móðins, í Smekkleysu og 12 tónum syðra og Eymundsson á Akureyri.

Fleiri fréttir