HS á N4

Dagskrárgerðarmenn á hinni ágætu Norðlensku sjónvarpsstöð N4 voru á ferð um Skagafjörð í síðustu viku og tóku hús á fólki, fyrirtækjum og stofnunum og verður afraksturinn sýndur á stöðinni á næstunni. Meðal þeirra sem þeir heimsóttu var Heilbrigðisstofnunin og var þátturinn sýndur fyrir helgi.

 

Í þættinum ræðir Karl Eskill Pálsson við framkvæmdastjóra heilbrigðisstofnunarinnar og framkvæmdastjóra hjúkrunar og eru það fjárlögin sem er á oddinum. Hægt er að sjá þáttinn á HÉR en N4 sendir út þátt dagsins kl 18:15.

Fleiri fréttir