HS fær skiptibekk frá Verkstjórasambandinu
Verkstjórasamband Íslands hélt sitt 34. ársþing í Skagafirði dagana 2. - 4. júní s.l. og af því tilefni afhenti sjúkrasjóður VSSÍ Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 700.000 kr styrk til tækjakaupa. Ákveðið er að kaupa nýjan skoðunarbekk á skiptistofu heilsugæslunnar fyrir féð.
Það er hefð fyrir því hjá VSSÍ að afhenda peningagjafir til heilbrigðisstofnana þar sem Landsþing þeirra er haldið í það skiptið til kaupa á tækjum sem þörf er á og er þetta í annað sinn sem HS nýtur góðs af gjafmildi VSSÍ. Hafsteinn Sæmundsson framkvæmdastjóri HS þakkaði VSSÍ höfðinglega gjöf og vinsemd í þeirra garð.
Myndin var tekin á skiptistofu heilsugæslunar þegar formaður sjúkrasjóðs VSSÍ, Reynir Kristjánsson og stjórnarmenn félagsins afhentu HS þessa góðu gjöf.