Húfa og gleraugu fundust
Kona nokkur kom við á skrifstofu Feykis fyrr í dag með húfu og gleraugu meðferðis sem hún fann er hún átti leið um svæðið fyrir ofan Háuhlíðina á Sauðárkróki. Ekki voru hlutirnir þó á sama stað en líklega má ætla að þarna hafi verið fólk í berjamó sem týndi hlutunum. Eigendur þeirra geta vitjað um þá í afgreiðslu Nýprents.