Hugmyndir um árlegan ljósadag í Skagafirði
Þeirra Önnu Jónu Sigurbjörnsdóttur, sem lést í bílslysi 12. janúar sl. og Skarphéðins Andra Kristjánssonar, sem lést tveimur vikum síðar í kjölfar bílslyssins, var minnst á afar táknrænan hátt af fjölskyldu og vinum dagana eftir fráfall þeirra. Friðarljós voru tendruð sem lýstu upp bæinn og hjörtu þeirra sem leið áttu hjá.
Fram hafa komið hugmyndir um að hafa árvissan ljósadag í Skagafirði og í forsíðufrétt í síðasta tölublaði Feykis segist Brynhildur í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki vilja halda í þá fallegu hefð og gera 12. janúar að ljósadegi í Skagafirði. Þá er tilvalið að nýta afgangskerti eftir jólin, lýsa upp skammdegið og minnast látinna ástvina.
Fleiri hafa nefnt þessa góðu hugmynd, sem er einföld í framkvæmd en um leið afar gefandi og táknræn, og vonandi að Skagfirðingar standi saman um að gera hana að veruleika.