Húnar aðstoða ferðamenn í vanda
Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga fóru í tvö útköll síðastliðinn mánudag. Fyrra útkallið barst kl. 15:50 þar sem kínverskir ferðamenn óskuðu eftir aðstoð 10 km inni á veg F547 þar sem þeir sáu fastir.
Samkvæmt færslu Húna hefur staðsetningin þó eitthvað vafist fyrir ferðamönnunum þar sem það kom á daginn að þeir væru staddir á hinum endanum á F547 þ.e.a.s. Borgarfjarðamegin. „Við fundum engan og snérum frá við Aðalból í Austurárdal við skafl sem við vorum vissir um að óbreyttur jepplingur kæmist ekki yfir,“ segir í færslunni.
Stuttu síðar, kl. 16:30, barst önnur aðstoðarbeiðni frá vegfaranda sem var fastur á vegi 711 við Vesturhópsvatn. Þegar Húnar komu staðinn var búið að kippa þeim bíl upp á veg aftur.
Húnar hafa haft í nógu að snúast undanfarna viku við að sinna aðstoðarbeiðnum frá ferðamönnum í vanda, eins og greint hefur verið frá hér á feykir.is.