Húnar sinntu 26 verkefnum í óveðrinu
Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga hafði í nógu að snúast í óveðrinu sem gekk yfir í fyrradag en samkvæmt heimasíðu björgunarsveitarinnar sinnti hún 26 verkefnum þann daginn.
Verkefnin voru mest bundin við fólksflutninga bæði frá vinnustöðum og skólunum en stærstu verkefnin voru að koma nemendunum úr leik- og grunnskólum bæði heim til sín og í skólabílana á Laugarbakka. Einnig voru hestamenn aðstoðaðir vegna fóðrunar á hrossum í hesthúsahverfinu ofan Hvammstanga.
Um tíma var sveitin með þrjá jeppa og snjóbíl í eigu sveitarinnar við að sinna hinum ýmsu aðstoðarbeiðnum.