Húnaþing vestra auglýsir breytingar á skipulagi
Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 14. mars sl. var samþykkt að að leita umsagnar á sameiginlegri skipulagslýsingu fyrir nýtt skipulag. Skipulagslýsingin nær annars vegar til nýs deiliskipulags fyrir skólasvæði Hvammstanga og hins vegar breytingar á deiliskipulagi austan Norðurbrautar til samræmis við nýtt deiliskipulag.
Við breytingu á deiliskipulagi austan Norðurbrautar falla skilmálar um lóð íþróttamiðstöðvar og grunnskóla úr gildi. Þá verður breyting á syðri skipulagsmörkum og skipulagssvæðið minnkar um 3,2 ha í samræmi við nýtt deiliskipulag skólasvæðisins á Hvammstanga sem tekur yfir hluta svæðisins.
Fyrirhugað deiliskipulag fyrir skólasvæði er um 5 ha að stærð, þar er grunnskóli Húnaþings vestra, íþróttamiðstöð, Hvammstangakirkja, leikskólinn Ásgarður, kvenfélagsgarðurinn Bjarkarás og opið útivistarsvæði við Syðri-Hvammsá.
Skipulagslýsingin er sett fram í greinargerð og verður til sýnis í Ráðhúsi Húnaþings vestra og á heimasíðu sveitarfélagsins á slóðinni https://www.hunathing.is/is/thjonusta/skipulags-og-byggingarmal/skipulagsmal-i-auglysingu frá 19. mars til og með 9. apríl 2019.
Íbúum og hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að leggja fram sjónarmið og ábendingar við skipulagslýsinguna. Skal þeim skilað skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is fyrir 9 apríl n.k.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.