Húnaþing vestra hvetur til lagabreytinga vegna skattlagninga í þéttbýli

Á fundi byggðarráðs þann 20. febrúar sl. var samþykkt ályktun vegna álagningar fasteignaskatts á hesthús í þéttbýli en hesthúsaeigendur víða á landinu hafa mótmælt þeim miklu hækkunum sem á þeim hefur dunið í kjölfar úrskurðar Yfirfasteignamatsnefndar  sem komst að þeirri niðurstöðu að gripahús í þéttbýli beri að skattleggja á þann hátt að þau falli undir C-flokkí í stað A-flokks eins og áður var. 

Ályktun hljóðar svo:
„Byggðarráð Húnaþings vestra skorar á innanríkisráðherra að leggja nú þegar fram frumvarp á Alþingi til breytinga á lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, þannig að hesthús í þéttbýli færist undir a – lið 3. mgr. 3. gr. laganna í stað c – liðar eins og nú er og að breytingin taki til álagningarársins 2012.“

Svohljóðandi bókun var einnig lögð fram á fundinum:
„Þrátt fyrir framangreinda áskorun er ljóst að álagning fasteignaskatts ársins 2012 á hesthús í þéttbýli mun óhjákvæmilega verða skv. c – lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, enda eru ekki lagaheimildir til annars. Hins vegar samþykkir byggðarráð að fresta gjalddögum fasteignaskatts á hesthús í þéttbýli til 1. júlí nk. og að þeir verði 6 eða 1. júlí, 1. ágúst, 1. september, 1. október, 1. nóvember og 1. desember. Komi til þess að Alþingi samþykki breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem hafi áhrif á álagningu fasteignaskatts ársins 2012 á hesthús í þéttbýli er jafnframt ljóst að sveitarfélagið mun leggja fasteignaskattinn á að nýju til samræmis við þær lagabreytingar.“

Fleiri fréttir