Húnaþing vestra í markaðssetningu

Sveitarstjórn Húnaþings vestra og Ferðamálafélag Vestur-Húnavatnssýslu boða atvinnurekendur, aðila í ferðaþjónustu og forsvarsmenn stofnana í sveitarfélaginu til vinnufundar um markaðssetningu Húnaþings. Vinnufundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu Hvammstanga laugardaginn 19. mars nk. kl. 10:00 – 15:00.

Fundarstjóri verður Sævar Kristinsson frá Netspor ehf.

Fundarhlé verður kl. 12:00 til 13:00 og boðið verður uppá hressingu á Vertanum.

Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig eigi síðar en föstudaginn 18. mars nk. með tölvupósti á eftirtalin netföng:

daeli@daeli.is

skuli@hunathing.is

Fleiri fréttir