Húnaþings vestra leitar að sviðsstjóra fjölskyldusviðs
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
24.09.2013
kl. 09.05
Húnaþings vestra leitar að metnaðarfullum aðila til að stýra sameinaðri fræðslu- og félagsþjónustu sveitarfélagsins. Viðkomandi mun bera ábyrgð gagnvart sveitarstjóra og sveitarstjórn í öllum störfum sínum og ákvörðunum. Umsóknarfrestur um starfið rennur út í dag 24. september.
Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veita Eydís Aðalbjörnsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í símum 455-2400 og 845-1345 og Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í síma 455-2400 og 864-4806.
Sjá nánar HÉR