Hver að verða síðastur að kaupa miða á forsöluverði

Nú eru aðeins um 50 dagar í Landsmót hestamanna í Reykjavík  og fer hver að verða síðastur að kaupa miða á mótið, í stúku og hjólhýsastæði með rafmagni á forsöluverði. „Hestamenn og aðrir gestir eru hvattir til að tryggja sér bestu verðin og munið að forsölu lýkur 15. maí!“ segir á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts á Hvammstanga.

Félagar í Þyt eru farnir að huga að þessum málum og samkvæmt heimasíðu félagsins vildu nokkrir þeirra láta það berast að þeir eru búnir að kaupa rafmagnsstæði í stæði B, á bilinu frá 39 – 48, ef einhverjir fleiri Þytsfélagar vilja vera með í hópnum.

Sem fyrr segir lýkur forsölunni þann 15. maí en eftir þann tíma munu öll verð hækka. Afsláttur til félagsmanna BÍ og LH munu þó haldast inni, sem og afslátturinn fyrir N1 korthafa.

Dagskrá mótsins er komin inn á heimasíðu Landsmótsins  og þar má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir gesti og keppendur. Hér má einnig sjá kort af svæðinu.

Fleiri fréttir