Hver stórlaxinn á eftir öðrum

Veiðin byrjaði í Víðidalsá og Fitjá sl. sunnudag og seinni part sama dag var búið að landa níu löxum en samkvæmt heimasíðu Lax-á var þetta allt stórlax, á bilinu 80-93 sm.

Það var Veiðiklúbbur Roundtable Íslands sem voru við veiðar. „Flestir hafa veiðst á litlar flugur 12-16 enda lítið vatn og aðstæður frekar erfiðar sól og hiti. Fiskurinn er vel dreifður og eru komnir fiskar upp um alla á. Fyrsta fiskinn fékk Guðmundur Jóhannsson í Streng í Fitjá, 87 cm hrygna, á Haug hitch nr 14“,“ segir á heimasíðu Lax-á.

Samkvæmt heimildum Mbl.is sást fiskur víða í ánni en þeir sem náðust á land komu úr Dalsárós, en þar veiddust tveir laxar, þrír í Harðeyrarstreng, þrír í Ármótum og einn í Streng í Fitjá.

„Þetta er enn ein góða opnunin á landinu og frábærar fréttir fyrir þá sem ætla í veiði í sumar. Áin var þó frekar fallandi í vatni eins og margar ár á landinu og vona menn eftir góðum dembum hið fyrsta,“ segir í frétt á Mbl.is. 

 

Fleiri fréttir