Hvernig á að flokka um jólin?

Flokka ehf. hefur sett leiðbeiningar inn á heimasíðu sína um flokkun á ýmsum úrgangi sem til fellur yfir hátíðirnar og getur vafist fyrir fólki hvernig skal flokka. Á heimasíðunni er einnig að finna upplýsingar um opnunartíma yfir jól og áramót.

Meðal þess sem hafa ber í huga er að

  • jólapappír fer í almennt sorp þar sem hann er yfirleitt með glansáferð sem þykir ekki góð í bland við endurvinnanlegan pappír og því ekki æskilegur í  grænu tunnuna.
  • gjafaböndin og annað pakkaskraut fara einnig í almennt sorp því það er yfirleitt hvorki pappi né plast og skal fara í urðun.
  • mandarínu kassarnir fara í urðun en best er að skila þeim í Flokku þar sem þeir taka mikið pláss í tunnunni.
  • tunnurnar fyllast fljótar á þessum árstíma, sérstaklega svarta tunnan, og reynst gæti nauðsynlegt að koma með jólapappírinn, pakkaskrautið, pappaumbúðir og annað í Flokku. 
  • þrífa endurunnið efni, s.s. plastumbúðir og annað, vel áður en það er sett í grænu tunnuna.

Næstu tunnulosanir í Skagafirði eru sem hér segir:

Sauðárkrókur - neðri bær: Svört tunna 21. des., græn tunna 4. jan. og svört tunna 18. jan.
Sauðárkrókur - efri bær: Svört tunna 28. des., græn tunna 11. jan. og svört tunna 25. jan.

Hólar og Hofsós: Græn tunna 27. des., svört tunna 8. jan. og græn tunna 22. jan.
Varmahlíð: Svört tunna 2. jan., græn tunna 15. jan. og svört tunna 29. jan.

Hræbíllinn verður næst á ferðinni 27. des

Bændaplasti verður safnað 7. og 14. janúar.

 

 

Fleiri fréttir