Hvítasunnukökubasar Kormáks
Uppskeruhópur Umf. Kormáks 2013 verður með árlegan Hvítasunnukökubasar í dag, föstudaginn 25. maí, í anddyri Fæðingarorlofssjóðs/KVH og hefst hann kl. 13.
„Á boðstólum verður meðal annars okkar rómuðu Hnallþórur, s.s. marengs og súkkulaði, auk annars góðgætis af ýmsum toga,“ segir í auglýsingu í nýjasta tölublaði Sjónaukans.
Bent er á að greiðslukort og peningar verða jafngildir greiðslumátar á kökubasarnum.