Í engu samræmi við gefin fyrirheit
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af boðaðri breytingu á póstþjónustu í Skagafirði sem og á landsbyggðinni. Málið var tekið fyrir á sveitarstjórnarfundi Svf. Skagafjarðar þann 17. febrúar sl. Í bókun sveitarstjórnar segir að ljóst sé boðaðar breytingar muni þýða þjónustuskerðingu fyrir íbúa og fyrirtæki á svæðinu sem skerðir samkeppnishæfni þess.
„Þær breytingar sem boðaðar eru nú eru í engu samræmi við þau fyrirheit sem gefin voru af Íslandspósti eftir síðustu breytingar þegar þjónusta var skert, meðal annars með lokun pósthúsa,“ segir í bókun sveitarstjórnar.
Bókunin var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn.