Illa farnir í Skagafirði

Í ferðaþáttunum Illa farnir ferðast Davíð Arnar, Arnar Þór og Brynjólfur um Ísland með það að markmiði að kynnast landinu og lenda í ævintýrum. Fyrir helgi fór 8. þátturinn af 16 í loftið á Vísi.is en þar félagarnir skella sér á bretti á skíðasvæði Tindastóls og skella sér í Crazy Roller.

Að því loknu fara þeir á N1 Ábæ og gæða sér á pylsu, eða spikfeitri tvíhleypu eins og þeir kalla hana, og enda svo með því að dýfa sér í Grettislaug. Athygli vekur flott myndataka sem sýnir umhverfi Tindastóls og Reykjastrandar í allri sinni dýrð.

Vert er að minna á að Vetrarhátíð Tindastóls verður um næstu helgi og þá verður aldeilis fjör í fjallinu.

 

Fleiri fréttir