Ingimar lætur af formennsku í Hrossaræktarsambandinu

Nýverið var haldinn aðalfundur í Hrossaræktarsambandi Skagafjarðar. Að sögn Ingimars Ingimarssonar á Ytra-Skörðugili, fráfarandi formanns, var fámennt en góðmennt á fundinum. Sjálfur gaf hann ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, enda búin að sitja í stjórn upp undir 20 ár.

„Ég var búin að sitja í stjórn þetta lengi og vera formaður alla þessa öld, mál var að linnti,“ sagði Ingimar þegar Feykir hafði samband við hann eftir fundinn.

Nýr í stjórn er Haraldur Þ.Jóhannsson í Enni en aðrir í stjórn eru Ólafur Sigurgeirsson, Kálfsstöðum, Sveinn Árnason, Sauðárkróki, Sigurgeir Þorsteinsson, Varmalandi og Sæmundur Þ. Sæmundsson, Tunguhálsi.

Fleiri fréttir