Ingunn sigraði B-úrslit
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
02.07.2011
kl. 08.42
Ingunn Ingólfsdóttir í hestamannafélaginu Stíganda í Skagafirði sigraði B-úrslitin í barnaflokknum á Hágangi frá Narfastöðum með 8,62. Þar með tryggði hún sér sæti í A-úrslitunum sem fara fram í dag kl. 13:30. Önnur varð Fáksstúlkan Rúna Tómasdóttir á Brimli frá Þúfu með 8,57 og þriðja varð Sylvía Sól Guðmundsdóttir úr Létti á Skorra frá Skriðulandi með 8,53.
B-úrslit barnaflokkur
- 1 Ingunn Ingólfsdóttir / Hágangur frá Narfastöðum 8,62
- 2 Rúna Tómasdóttir / Brimill frá Þúfu 8,57
- 3 Sylvía Sól Guðmunsdóttir / Skorri frá Skriðulandi 8,53
- 4 Karitas Ármann / Bríet frá Friðheimum 8,35
- 5 Matthías Már Stefánsson / Hvinur frá Hamrahóli 8,32
- 6 Þorri Mar Þórisson / Ósk frá Hauganesi 8,16
- 7 Dagbjört Skúladóttir / Tígull frá Runnum 8,02
- 8 Katla Sif Snorradóttir / Rommel frá Hrafnsstöðum 7,09
/Landsmót.is