Ingvi Hrannar bjargaði stigi með glæsimarki

Það var leikið í 2. deildinni á Blönduósi í dag í snörpum norðanvindi en þá fengu heimamenn í Tindastól/Hvöt Hött frá Egilsstöðum í heimsókn. Leikurinn var jafn og fór svo að lokum að liðin skildu jöfn, gerðu eitt mark hvort.

Höttur lék undan vindi í fyrri hálfleik og byrjaði leikinn af miklum krafti. Engu að síður tókst þeim ekki að skapa teljandi hættu upp við mark heimamanna og smá saman dró af gestunum og leikurinn jafnaðist. Allt leit út fyrir að fyrri hálfleikur yrði markalaus en á 44. mínútu dró til tíðinda. Eftir að hætta skapaðist upp við mark Tindastóls/Hvatar vann Arnar Skúli boltann á markteig en í stað þess að hreinsa ákvað kappinn að leika frá marki en þá náði Friðrik Ingi Þráinson að renna sér í boltann og senda í mark heimamanna án þess að Gísli markvörður ætti séns. Heimamenn óðu í sókn í kjölfarið, nældu sér í hornspyrnu og skölluðu boltann í þverslá gestanna. 0-1 í hálfleik.

Síðari hálfleikur var fjörugri en sá fyrri. Tindastóll/Hvöt settu kraft í sóknina en vindurinn var báðum liðum erfiður og sendingar inn fyrir vörn Hattar voru vonlitlar því vindurinn reif boltann með sér. En eitthvað varð undan að láta og sóknarþungi heimamanna bar loks ávöxt á 65. mínútu þegar Ingvi Hrannar Ómarsson skoraði glæsilegt mark, tók boltann á lofti og klippti hann glæsilega í mark gestanna. Eftir þetta hljóp kapp í leikmenn og bæði lið vildu sigur. Það var því sótt að fremsta megni og fengu bæði lið ágæt tækifæri til að bæta við mörkum. Á lokamínútum leiksins var brotið á Ingva Hrannari innan teigs og vildu heimamenn fá víti en ágætur dómari leiksins lét vera að flauta í það skiptið. Lokatölur því 1-1.

Úrslitin voru í raun sanngjörn en heimamenn fengu betri færi; skölluðu sem fyrr segir í slá og þá björguðu gestirnir á línu í síðari hálfleik. Gísli var öruggur í marki heimamanna í dag og fyrir framan hann steig vörnin varla feilspor. Sóknarleikurinn var brokkgengur en erfitt var að ná upp góðu spili við þær aðstæður sem leikið var við í dag.

Fleiri fréttir