Ingvi Rafn efnilegastur
Í fréttum af viðurkenningum á uppskeruhátíð Tindastóls hér á Feyki.is misritaðist nafn efnilegasta leikmanns 2. flokks Tindastóls/Hvatar. Heitir drengurinn Ingvi Rafn Ingvarsson réttu nafni.
Ingvi Rafn var lykilmaður í sínu liði í sumar, lék alla leikina tíu auk tveggja leikja í úrslitum og skoraði hann alls sex mörk. Þá fékk hann eitt gult spjald í sumar samkvæmt samantekt KSÍ. Við biðjum Ingva Rafn afsökunar á að hafa farið rangt með nafn hans hér á Feyki.is.