Íslandsmeistararnir úr Vesturbænum svekktir í Síkinu

Tindastólsmenn gerðu sér lítið fyrir og lögðu meistara KR í æsispennandi leik í Síkinu í kvöld. Stuðningsmenn Stólanna voru nokkuð brattir fyrir leik og náðu heimamenn undirtökunum í byrjun en KR-ingar voru ólseigir og voru hársbreidd frá því að landa sigri. Strákarnir áttu hinsvegar glæsilegan endasprett og snéru tapaðri stöðu í jafna og leikurinn framlengdur. Hart var barist í framlengingu og leikmenn týndust út af með 5 villur. Á endanum voru það heimamenn sem voru sterkari og sigruðu 99-94.

Liðin tóku það rólega í stigaskorinu fyrstu mínúturnar en það voru heimamenn sem vöknuðu fyrr af dvalanum og voru yfir 8-2 eftir rúmar 4 mínútur. Stólarnir voru með yfirhöndina að loknum fyrsta leikhluta, staðan 20-15. Dómarar leiksins, Jón Bender og Steinar Orri Sigurðsson, létu fátt framhjá sér fara og leikmenn KR voru duglegir að brjóta af sér í fyrri hálfleik og voru stóru strákarnir, Hreggviður, Jón Orri og Finnur, sérlega lunknir við að fá dæmdar á sig villur. Ekki máttu KR-ingar við því að safna villum því þeir mættu aðeins með 8 leikmenn á Krókinn í kvöld. Um miðjan annan leikhluta náðu Stólarnir 11 stiga forystu, 34-23, en eins og svo oft áður í vetur hélst þessi fína forysta ekki lengi, KR gerði næstu 9 stig, staðan 34-32, og stuttu síðar komust meistararnir yfir, 35-36. Síðustu körfuna í hálfleiknum gerði Hreinsi, sem átti fínan leik í kvöld, og Stólarnir yfir í hálfleik, 37-36.

Seinni hálfleikur var jafn og æsispennandi. Hreinsi og Maurice Miller, sem hafði hægt um sig í fyrri hálfleik, gerðu góðar körfur en liðin skiptust á um að hafa forystuna þegar leið á þriðja leikhluta. Svabbi gerði 3ja stiga körfu og kom Stólunum 6 stigum yfir, 64-58 þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum en KR-ingar  gerðu 4 síðustu stigin og því tveggja stiga munur fyrir fjórða leikhluta, staðan 64-62. Jafnt var á flestum tölum fram yfir miðjan leikhlutann en þá sigu KR-ingar framúr en þó munaði aðeins 1-3 stigum og allt gat gerst. Trey Hampton fékk sína fimmtu villu þegar 2 og hálf mínúta var eftir, klaufalegt brot því Finnur skoraði og fékk að auki víti sem hann setti niður, staðan orðin 79-82. KR-ingar bættu við 2 stigum af vítalínunni þegar 43 sekúndur voru eftir en Stólarnir gáfust ekki upp, köstuðu boltanum fram á Rikka sem splæsti einu 3ja stiga skoti beint oní úr horninu. Finnur fékk tvö víti og setti það fyrra niður þegar 25 sekúndur voru eftir. Helgi Rafn var snöggur að svara eftir fína sendingu frá Miller en aftur fengu KR-ingar víti og nú setti Skarphéðinn Inga annað vítið niður en aftur skoraði Helgi Rafn eftir sendingu Millers og staðan því jöfn þegar leiktíminn rann út, 86-86.

Dauft var í Síkinu lengi í fjórða leikhluta þegar stuðningsmönnum Stólanna fannst liðið vera að kasta frá sér sigrinum. En nú var stemningin orðin fín og Helgi Rafn beið ekki boðanna og kom Stólunum yfir eftir sendingu frá Miller. KR-ingar náðu að komast yfir 88-89 og síðan varð leikurinn að hálfgerðri vítakeppni og Svabbi, Þröstur, Rikki stóðu fyrir sínu þar. Áður en yfir lauk voru Helgi Rafn og Svabbi komnir með 5 villur og sömuleiðis Finnur og Jón Orri hjá KR. Miller gerði síðan 4 síðustu stig Stólanna af vítalínunni og 99-94 sigur staðreynd.

Lið Tindastóls stóð vel fyrir sínu í kvöld og var lengstum betri aðilinn í leiknum. Sjálfstraust leikmann er nú allt annað en framan af vetri og menn hengja ekki haus þó eitt og eitt skot klikki. Maurice Miller átti flottan leik í kvöld, hann gerði aðeins 2 stig í fyrri hálfleik en bætti við 25 í síðari hálfleik og framlengingu en auk þess hirti hann 11 fráköst og átti 14 stoðsendingar. Svabbi gerði 15 stig og Hreinsi 10 en Helgi Rafn fór mikinn á lokamínútunum og nældi í 14 stig þegar upp var staðið. Hjá KR var Finnur Atli Magnússon atkvæðamestur með 22 stig og 13 fráköst en það truflaði KR talsvert að lenda í villuvandræðum snemma leiks. Stólunum gekk betur en oft áður í vetur fyrir utan 3ja stiga línuna, settu niður 11 af 29, en KR nýttu skotin illa, gerðu þeir aðeins 3 3ja stiga körfur í 21 tilraun.

En frábær frammistaða hjá Tindastólsmönnum í kvöld og leikurinn hin besta skemmtun - enda alltaf gaman að vinna KR!

Stig Tindastóls: Maurice Miller 27/11 fráköst, Svabbi 15/5 fráköst, Helgi Rafn 14/5 fráköst, Trey Hampton 12/12 fráköst, Hreinsi 10, Rikki 10, Þröstur 6 og Helgi Margeirs 5.

 

Fleiri fréttir