Ítreka áskorun um endurskoðun á niðurfellingu og lækkun byggðakvóta
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar harmar þá niðurstöðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins að vilja ekki endurskoða ákvörðun sína um úthlutun byggðakvóta til Sauðárkróks og Hofsóss. Þetta kemur fram í fundargerð Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd sveitarfélagsins 17. desember síðastliðinn.
Á fundi þann 6. nóvember sl. óskaði atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf. Skagafjarðar eindregið eftir því að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið myndi endurskoða ákvörðun sína um niðurfellingu byggðakvóta til Sauðárkróks og lækkun hans til Hofsóss úr 40 tonnum í 34 tonn. Niðurfelling kvótans er sögð mikið högg fyrir smábátasjómenn á Sauðárkróki. Nefndin fór jafnframt fram á að tekið verði tillit til sérstakra aðstæðna á Hofsósi en þar hefur byggðin átt undir högg að sækja.
Á fundi nefndarinnar sl. fimmtudag kom fram að ráðuneytið hafi kosið að hafa að engu skýringar og ábendingar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar varðandi vinnslu rækju af Íslandsmiðum á síðasta fiskveiðiári á Sauðárkróki og kemst fyrir vikið að þeirri niðurstöðu að úthluta engum byggðakvóta til Sauðárkróks á yfirstandandi fiskveiðiári.
„Ljóst er að niðurfelling byggðakvóta til Sauðárkróks mun hafa áhrif á afkomu upp undir 20 smábátaeigenda og fjölskylda þeirra sem stunda útgerð frá Sauðárkróki og heggur í raun stórt skarð í tekjur þeirra.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar vísar allri ábyrgð þessa gjörnings yfir á atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið um leið og nefndin ítrekar fyrri áskorun um að ákvörðunin verði endurskoðuð,“ segir loks í fundargerð.