Jódís Helga vann Stóru Upplestrarkeppnina - FeykirTv

Stóra upplestrarkeppnin var haldin í sal bóknámshúss FNV í gær og þar öttu kappi ellefu nemendur úr öllum grunnskólum Skagafjarðar og lásu textabút úr sögu og tvö ljóð. Nemendur Tónlistarskóla Skagafjarðar léku einnig nokkur lög fyrir gesti hátíðarinnar.

„Nemendurnir stóðu sig með stakri prýði og báru þess glöggt vitni að hafa æft sig af kappi og fengið góða þjálfun hjá kennurum sínum,“ sagði Laufey Leifsdóttir ritstjóri hjá Forlaginu, í samtali við Feyki.

Jódís Helga Káradóttir, nemandi í Varmahlíðarskóla, hlaut fyrsta sæti, Rannveig Sigrún Stefánsdóttir úr Árskóla annað sæti og Vigdís María Sigurðardóttir, Grunnskólanum austan Vatna, það þriðja.

Í viðurkenningarskyni fengu allir keppendur sérprentaða ljóðabók með ljóðum eftir Anton Helga Jónsson frá Félagi íslenskra bókaútgefenda og verðlaunahafar að auki peningagjöf frá Íslandsbanka.

„Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar er þegar upp er staðið meiri uppskeruhátíð en keppni. Nú hafa allir nemendur sjöundu bekkja grunnskólanna lagt hart að sér við að æfa framsögn síðan á degi íslenskrar tungu og enn einn árgangur bæst í hóp þjálfaðra upplesara um allan fjörð,“ sagði Laufey að lokum.

FeykirTV var á staðnum og meðfylgjandi myndskeið er tekið upp og klippt af Halldóri Ingólfssyni.

http://youtu.be/NIwSd-zUmuI

Fleiri fréttir