Jólabingó 10. bekkinga í Varmahlíð

Nemendur 10. bekkjar í Varmahlíðarskóla standa fyrir bingói á morgun, föstudag.
Nemendur 10. bekkjar í Varmahlíðarskóla standa fyrir bingói á morgun, föstudag.

Nemendur í 10. bekk Varmahlíðarskóla verða með sitt árlega jólabingó í matsal skólans, föstudaginn 4. desember kl 17:00. Að vanda verða fjölbreyttir og flottir vinningar.

Veitingar verða seldar í hléi. „Allir velkomnir og vonumst við til að sjá ykkur sem flest,“ segir í tilkynningu frá 10. bekkingum í Varmahlíðarskóla.

Fleiri fréttir