Jólagleði Geirmundar í Austurbæ
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
30.09.2014
kl. 09.39
Í fyrsta skipti í tuttugu ár blæs sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson til tónleika í Reykjavík undir yfirskriftinni Jólagleði Geirmundar. Tónleikarnir verða haldnir í Austurbæ þann 29. nóvember nk. og með honum í för verður frábært listafólk. Flutt verða þekktustu lög Geirmundar, þekkt jólalög og lög af jóladiski Geirmundar sem út kom á síðasta ári.
Gestasöngvarar með Geirmundi verða Óskar Pétursson, jólastelpurnar Anna Karen og Valdís, Helga Möller og Diddú sem nú kemur fram með Geirmundi í fyrsta sinn. Hljómsveit undir styrkri stjórn Vilhjálms Guðjónssonar mun annast undirleik og kynnir verður Þorgeir Ástvaldsson.
Miðasala er hafin á Miði.is.