Jólalag dagsins – Hvít jól
Það er kannski fullsnemmt að spá hvítum jólum núna en ekki er það útilokað samkvæmt langtímaspá Veðurstofunnar. En alla vega fylgir óskin með jólalagi dagsins Hvít jól sem þau Ellý Vilhjálms og Raggi Bjarna fluttu eftirminnilega á safnplötunni Hátíð í bæ: 48 íslensk jólalög sem kom út fyrir jólin 2003. Á þeirri plötu var safnað saman öllum þeim íslensku jólalögum sem einhvern tímann höfðu gert garðinn frægan í íslensku jólalagaflórunni, í gamla daga eða nýlega, á tvo hljómdiska.
Upphaflega sungu þau Ellý og Raggi lagið saman á 45 snúninga plötunni Fjögur jólalög, sem gefin var út af SG - hljómplötum árið 1964 en þar sungu þau, eins og nafnið bendir til, fjögur jólalög ásamt Hljómsveit Svavars Gests. Hin lögin voru Jólasveinninn minn, Jólin alls staðar og Litli trommuleikarinn.
Lagið er fengið að láni frá Irvin Berlin, eins mesta lagasmiðs í sögu Bandaríkjanna, en íslenska textann gerði Stefán Jónsson. Sá var vinsæll rithöfundur og kennari og er líklegast hvað þekktastur fyrir kvæði sín og sögur, ætluð börnum og unglingum, og má þar helst nefna Guttavísur og Hjaltabækurnar þrjár, Sagan hans Hjalta litla, Mamma skilur allt og Hjalti kemur heim.