Jólalag dagsins – Komdu heim um jólin - Jólagestir Björgvins
Þar sem einungis eru 14 dagar til jóla ætlar Feykir að koma sér, og þér, í jólagírinn með jólalagi dagsins. Jólagestir Björgvins tóku saman lagið „Komdu heim um jólin“ á tónleikum þeirra í Höllinni 2016.
Fleiri fréttir
-
Blanda og Svartá til leigu frá og með sumrinu 2025
Húnahornið greinir frá því að laxveiðiárnar Blanda og Svartá hafi verið auglýstar til leigu frá og með sumrinu 2025. Einkahlutafélagið Starir er með vatnasvæðið á leigu í dag en núgildandi leigusamningur rennur út í haust. Því óskar Veiðifélag Blöndu og Svartár eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í laxveiðiánum frá og með sumrinu 2025 til og með 2029 með almennu útboði.Meira -
Sr. Guðrún Karls Helgudóttir næsti biskup Íslands
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir 07.05.2024 kl. 15.15 gunnhildur@feykir.isNú liggur það ljóst fyrir hver verður biskup Íslands eftir síðari umferð biskupskosninganna lauk á hádegi í dag 7. maí og hlaut Sr. Guðrún Karls Helgudóttir flest atkvæði 1060 eða 52,19%. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson fékk 954 atkvæði eða 46,97%.Meira -
Katrín heimsækir Norðurland vestra
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf 07.05.2024 kl. 14.40 oli@feykir.isFyrstu kappræður þeirra tólf frambjóðenda sem stefna á Bessastaði fóru fram í Sjónvarpinu sl. föstudag og vöktu talsverða athygli og gott áhorf. Nú eru tæpar fjórar vikur til kjördags og því eru forsetaefnin komin á fulla ferð í eltingaleiknum um atkvæði kjósenda. Katrín Jakobsdóttir er mætt til leiks og er á ferð um landið en næstu tvo daga verður hún á Norðurlandi vestra; fundar á Blönduósi og Sauðárkróki miðvikudaginn 8. maí og á Hvammstanga degi síðar.Meira -
Hryllingsbúðin fer alveg að opna
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir 07.05.2024 kl. 14.13 gunnhildur@feykir.isNú er útlit fyrir að að Litla hryllingsbúðin fari að opna. Stefnt er að frumsýningu föstudaginn 10. maí. Sýningin sem átti að fara fram miðvikudaginn 8. maí fellur hinsvegar niður.Meira -
Hópslysaæfing við Blönduós á laugardaginn
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf 07.05.2024 kl. 11.37 oli@feykir.isNú laugardaginn 11. maí verður haldin stór hópslysaæfing í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. Fram kemur í tilkynningu á FB-síðu LNV að vettvangur æfingarinnar/slyssins verður ofan Blönduóss eða á gatnamótum Ennisbrautar og Neðribyggðarvegar. Af þeim sökum verður Ennisbraut lokuð við Mýrarbraut og Þverárfjallsveg frá kl.11:00 og fram eftir degi.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.