Jólatónleikar Hörpu og Halla
Harpa Þorvaldsdóttir og Haraldur Guðmundsson verða með jólatónleika í kvöld, Þorláksmessukvöld, til að þakka fyrir stuðning Hvammstangabúa og nærsveitunga í erfiðum veikindum Matthildar dóttur þeirra. Tónleikarnir verða haldnir í Hvammstangakirkju og hefjast kl. 20:30.
Samkvæmt Norðanátt.is er aðgangur ókeypis en Jólasjóðurinn tekur við frjálsum framlögum sem nýtast munu öðrum fjölskyldum sem þurfa á aðstoð að halda.