Jólatónleikar Lóuþræla á næsta leiti

Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi vestra heldur jólatónleika í Barnaskólanum á Borðeyri, fimmtudaginn 5. desember, kl. 20:30 og Félagsheimilinu Hvammstanga, þriðjudaginn 10. desember, kl. 20:30. Stjórnandi kórsins er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir.

Kynnir verður Guðmundur Þór Ásmundsson en hugvekju flytur Unnur Valborg Hilmarsdóttir. Á söngskránni eru jóla- og aðventulög, íslensk og erlend.

Enginn aðgangseyrir verða á tónleikana þar sem þeir eru í boði Landsbankans á Hvammstanga og styrktir af Menningarráði Norðurlands vestra.

Fleiri fréttir