Jólatónleikar Tónlistarskóla Skagafjarðar

Nóg verður um að vera hjá nemendum  Tónlistarskóla Skagafjarðar í desember  þar sem megin áhersla er lögð á samleik nemenda. Í þessari tónleikaröð munu koma fram  um 260 nemendur skólans á öllum aldri auk barna- og unglingakórs Árskóla og Varmahlíðaskóla.

 

Fjöldi barna og unglinga í kórunum eru um 200 þannig að hægt er að segja að það séu um 500 börn og unglingar sem koma fram á vegum tónlistarskólans.

Jólatónleikar skólans verða á eftirtöldum stöðum:

 

  • Hólar:
  • Grunnskólinn að Hólum
  • Laugardaginn 10.desember kl. 13

 

  • Hofsós:
  • Félagsheimilið Höfðaborg
  • Laugardaginn 10.desember kl. 14

 

  • Varmahlíð: Miðgarður
  • Sunnudaginn 11. desember kl.15
  • Hljómsveitir og barnakór Varmahlíðaskóla
  • Mánudaginn 12. desember kl. 18
  • Lengra komnir nemendur

 

Sauðárkrókur: 

Frímúrarasalurinn

  • Þriðjudaginn 13. desember kl. 18
  • Strengjasveitir,blásarasveit og  Skólakór Árskóla

 

Tónlistarskólinn:

  • Þriðjudaginn 13.desember kl. 20
  • Miðvikudaginn 14. desember kl. 18
  • Fimmtudaginn 15. desember kl. 17

 

Einnig koma nemendur skólans fram í jólamessum kirknanna víðsvegar um Skagafjörð.

Fleiri fréttir