Jólatónleikar Tónlistarskóla V-Hún
Tónlistarskóli V-Hún. verður með ferna jólatónleika næstu daga og verða fyrstu tónleikarnir haldnir í dag, mánudaginn 10. desember, í húsnæði grunnskólans á Hvammstanga kl. 17:00. Samkvæmt Norðanátt.is leika þar nemendur Ásgeirs Trausta og Guðmundar Hólmars.
Fimmtudaginn 13. desember verða svo tónleikar í grunnskólanum á Borðeyri og hefjast þeir kl. 12:30. Laugardaginn 15. desember verða tvennir tónleikar í Félagsheimilinu Ásbyrgi. Þeir fyrri hefjast kl. 13:00 og þeir síðari kl. 15:00.
Foreldrafélagið sér um kakóið og eru foreldrar beðnir um að koma með kaffibrauð.