Jónsmessuhátíð gengur í garð

Feykir náði rétt í þessu tali af Kristjáni Jónssyni á Hofsósi, sem er einn af þeim sem skipa undirbúningsnefnd fyrir árlega Jónsmessuhátíð, sem þar er að hefjast. Kristján sagði undirbúningi lokið, sólin væri farin að skína, allt nýslegið í þorpinu og dagskrárliðir að hefjast.Gestir eru farnir að streyma að og margir hafa lagt leið sína í KS og sundlaugina eða eru farnir að koma sér fyrir á tjaldsvæðinu eða í sumarhúsum og heimahúsum.

Núna klukkan fimm hefst Félagsmót Svaða á Hofgerðisvelli og klukkan sex hefst Jónsmessuganga, þar sem göngufólk verður ferjað frá Höfðaborg að Reykjarhóli og þaðan verður gengið út bakkana niður í Grafarós og út í Hofsós með leiðsögn heimamanns. Minnt er á að dagskrána er að finna hér á vefnum undir auglýsingahnappi á forsíðu.

Fleiri fréttir