Jörð skelfur á Norðurlandi
Upp úr klukkan þrjú í nótt varð stór jarðskjálfti 10 km NNV af Gjögurtá. Mældist hann 4,4 að stærð. Fjöldi eftirskjálfta hafa mælst og sá sterkasti 3,3 sem varð upp úr klukkan 7 í morgun á sömu slóðum.
Frá hádegi í gær hafa um 350 skjálftar mælst á landinu öllu, 186 minni en 1, 136 að stærð 1 til 2, 24 af stærð 2 til 3 og þeir sem voru stærri en 3 voru alls 5 , eftir því sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.