Júlíus Már rís upp í Þykkvabænum

Landnámshænsnaræktandinn Júlíus Már Baldursson flutti sig frá Tjörn á Vatnsnesi í sumar og hefur komið sér fyrir í Þykkvabænum með stóran hóp landnámshæna. Í bruna sem átti sér stað þann 28. mars árið 2010 fórust allar hænurnar á Tjörn, rúmlega 200 talsins ásamt 25 hönum, 147 ungum og þau 970 egg sem voru í klaki ásamt tækjum og búnaði, samkvæmt viðtali sem Feykir tók við hann skömmu síðar.

Aðeins tíu hanar sluppu við eldinn þar sem þeir voru í öðru húsi og fór Júlíus fljótlega af stað aftur með ræktun þar sem hann gat útvegað sér hænur. Eftir brunann skriðu fyrstu ungar úr eggjum hjá honum í ágúst það sama ár. Á Mbl.is í dag er viðtal við Júlíus sem segist hafa komið sér upp nýjum stofni, sem telur um 250 hænur og 40 hana, og ætlar að stækka hann í 400 dýr.

Morgunblaðið var í Þykkvabæ í tilefni af 100 ára afmæli þess í næsta mánuði og var Júlíus Már tekinn tali og sagði hann að aðalmálið vera að unga út og fjölga fuglum sem hann selur vítt og breitt um landið.

Fleiri fréttir