Kaffi Kind á Ketilási í kvöld
feykir.is
Skagafjörður
23.10.2014
kl. 15.22
Mikið hefur verið um að vera þessa vikuna hjá nemendum Grunnskólans austan Vatna enda stendur nú yfir nýsköpunarvika. Nýsköpunarsýning verður í húsnæði skólans á Hofsósi föstudaginn 24. október kl 10:30-12. Meðan sýningin stendur yfir munu 9. bekkingar vera með opið kaffihús.
Í kvöld, þann 23. október verða þeir hinsvegar með kaffiveitingar í Kaffi kind í Ketilási í Fljótum milli kl 19-21. Allir eru velkomnir að koma í skólann og sjá vinnu nemenda og gæða sér á góðgæti í kaffihúsunum.