Karlmenn þurfa ekki að mæta í kjólfötum og konur ekki í síðkjólum

Nú styttist í Vínartónleika Heimis sem haldinn verður í Miðgarði næstkomandi laugardag, þann 14. janúar. Þar munu Karlakórinn Heimir, einsöngvararnir Helga Rós og Óskar Pétursson ásamt hljómsveitinni Salón Islandus bjóða upp á fyrsta flokks Vínartónlist á nýársskemmtun í Miðgarði.

Á heimasíðu Heimis svara kórmeðlimir spurningum sem þeim hafði borist varðandi hvers konar klæðnaður sé við hæfi á Vínakvöldinu.

„Ekki er gerð nein krafa um klæðaburð gesta, svo lengi sem fatnaðurinn er snyrtilegur og heillegur. Karlmenn þurfa ekki að mæta í kjólfötum, og konur ekki í síðkjólum (nema auðvitað ef þeim langar til). Karlar þurfa aðeins að gæta því að vera ekki mikið betur til fara en kórfélagar, það gæti nefnilega kastað skugga á okkur. Konur þurfa aðeins að gæta að því pilssídd sé siðsamleg.“

Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og munu þeir svo líða út í dansleik þar sem dansað verður við undirleik Salón Islandus undir styrkri dansstjórn Loga Vígþórssonar, hins vinsæla danskennara Skagafirðinga til margra ára. Dagskránni lýkur kl. 1:00 eftir miðnætti.

Forsala aðgöngumiða er í Kompunni við Aðalgötu og í KS Varmahlíð.

Fleiri fréttir