Keflavík og Tindastóll í kvöld

Annar leikur Tindastóls í fyrirtækjabikarnum verður háður er liðið heimsækir Keflavík syðra. Leikurinn hefst klukkan 19:15. og verður hann sýndur á Tindastóll TV en einnig er boðað til sýninga á Kaffi Krók en þar verður pizzuhlaðborð í boði á 1500kr og 750kr fyrir börn.  Á heimasíðu Tindastóls eru allir hvattir til að mæta og halda áfram með snilldar stemmningu sem var í vor.

Þeir sem búa eða eru staddir á suðurlandinu eru að sjálfsögðu hvattir til að mæta í Keflavík og styðja strákana.

Fleiri fréttir