Iðandi líf á Alexandersflugvelli - Myndband

Skrifað var undir samstarfssamning milli Flugakademíu Keilis og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sl. fimmtudag en þá opnaði flugskólinn starfsstöð fyrir nemendur í verklegu atvinnuflugnámi á Alexandersflugvelli í Skagafirði. Í tilefni dagsins mætti skólinn með þriðjung flugvéla sinna, þar af stolt flotans DA42 NG New Generation, fjögurra sæta kennslu- og einkaflugvél en sú kennsluvél er hin fullkomnasta á landinu og eina vélin í þeim flokki sem hefur vottun til flugs í ísingarskilyrðum. Gestir og gangandi var boðið að skoða vélarnar og flugnámið kynnt fyrir áhugasömum. Veðurguðirnir voru í sínu besta skapi því sólin skein glatt og veðrið stillt.

Tíðindamanni Feykis var m.a. boðið í flugferð ásamt Þorkeli V. Þorsteinssyni, skólameistara FNV en flugstjórinn var brottflutti Blönduósingurinn, Davíð Brár Unnarsson.

Tengd frétt: Keilir opnar starfsstöð á Sauðárkróki

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir