Kennarar og nemendur úr FNV heimsækja Slóvakíu
Þann 5. apríl lögðu Steinunn Hjartardóttir og Þorkell V. Þorsteinsson af stað með nemendurna; Önnu Lilju Sigurðardóttur, Benjamín Baldursson, Evu Margréti Hrólfsdóttur, Guðfinnu Sveinsdóttur og Ragnheiði Petru Ólafdóttur í viku ferðalag til Myjava Slóvakíu. Sagt er frá þessu á heimasíðu FNV.
Nemendurnir tóku þar þátt í dagskrá með nemendum frá Finnlandi, Ungverjalandi, Tyrklandi og Slóvakíu. Ferðin var á vegum Cómeníusaráætlunarinnar (ACDC).
Heimamenn skipulögðu þessa heimsókn sem m.a. fól í sér heimsókn til höfuðborgarinnar Bratislava og skoðunarferðir um fagra náttúru Slóvakíu. Fóru nemendur í langa gönguferð um hrikaleg gljúfur, skoðuðu dropasteinshella, heimsóttu náttúrubað og fóru í fjallaferð í Tatra fjöllum, en því miður var of mikil snjókoma til þess að sjá hrikaleg fjöll sem þar eru. Að lokum var skoðaður draugakastali, þar sem draugar léku lausum hala og gerðu gestum bilt við.
Heimsókn þessi var ekki eingöngu skoðunarferð því nemendur kynntu verkefni sín fyrir öðrum þátttakendum, en að þessu sinnu var þemað ,,Kraftur vatns“. Þeir fluttu þrjá fyrirlestra, tveimur fylgdu glærur en þeir höfðu einnig gert kynningarmyndband um skólann og félagslíf nemenda. Var gerður góður rómur að kynningu þeirra.
Með þessari ferð lýkur tveggja ára verkefni sem ber heitið Active Concern for Dynamic Change. Verkefnið hófst með heimsókn annarra þátttakenda til Íslands haustið 2012. Síðan hafa verið farnar ferðir til Ungverjalands, Finnlands, Tyrklands og nú síðast til Slóvakíu.