Kennir Namibíumönnum rekstur fiskeldisstöðva

Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum hefur um árabil átt gott samstarf við Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna. Meðal þátta í því samstarfi er námskeiðahald í Afríku og Asíu og er skemmst að minnast ferðar þeirra Helga Thorarensen og Ólafs Sigurgeirssonar til Víetnam nú í júní.

Þessa dagana er Arnþór Gústavsson, starfsmaður deildarinnar, staddur í Namibíu þeirra erinda að kenna innfæddum sem mest um rekstur fiskeldisstöðva.

Fleiri fréttir