Kindum bjargað úr sjálfheldu
Feykir sagði frá því snemma í ágúst að björgunarsveitarmenn hefðu bjargað kindum úr Kolugljúfrum. En það eru ekki bara húnvetnskar kindur sem koma sér í vandræði, því þrjár kindur í fyrrum Lýtingsstaðahreppi stukku um einn og hálfan metra yfir á klettadrang á flótta undan smalamönnum á föstudaginnæ, eins og sagt er frá í Morgunblaðinu í dag.
Haft er eftir Þorsteini Guðmundssyni hjá Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlið að sex menn hafi tekið þátt í björgunaraðgerðum vegna kindanna. Þar sem 10-12 metrar eru niður af klettinum þurfti að senda einn björgunarsveitarmann sömu leið og kindurnar niður á klettinn, sem síðan fangaði kindurnar og rétti þær yfir bilið, sem vel má sjá á myndinni.
Að sögn Þorsteins er nokkuð um að björgunarsveitin sinni útköllum vegna kinda, en þó sé algengara að skepnum sé bjargað úr haughúsum en klettum.