Kindur og steinull
Það var skondin sjón sem blasti við einum vegfarenda við Steinullarverksmiðjuna á Sauðárkróki snemma morguns fyrir skömmu. Nokkrar kindur sem komnar voru nokkuð útfyrir sín heimalönd töltu þá upp að verksmiðjunni og litu inn um gluggann líkt og verið væri að athuga hvort nokkur væri inni.
Þetta vakti upp spurningu hjá myndasmiðnum hvers konar ull suðféð bæri, þéttull, þakull eða lausull en engin niðurstaða fengin enn enda ærnar farnar annað.
Myndir: Gústav Bentsson.