Kirkjukór Hvammstanga 70 ára
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
06.12.2013
kl. 09.40
Sunnudaginn 8. desember eru 70 á síðan Kirkjukór Hvammstanga var stofnaður. Af því tilefni býður kórinn öllum núverandi og fyrrverandi félögum kórsins í kvöldkaffi í Safnaðarheimilinu á Hvammstanga að kvöldi afmælisdagsins kl. 20:00.
Í fréttatilkynningu frá kórnum er vonast eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta og eiga saman skemmtilega kvöldstund.