Kjarval með skeiðkeppni
Föstudaginn 23. september kl. 16.00 heldur Skeiðfélagið Kjarval í Skagafirði opið skeiðmót á svæði hestamannafélags Léttfeta, Fluguskeiði á Sauðárkróki. Keppt verður í 150 og 250 metra skeiði úr básum með rafrænum tímatökubúnaði. Peningaverðlaun eru á fljótustu hestana og öðlast þeir rétt til þátttöku á skeiðsýningu í reiðhöllinni Svaðastöðum um kvöldið.
Tekið er á móti skráningum á netfangið thorsteinn@mail.holar.is en henni lýkur 21. september klukkan 22:00. Skráningargjald er krónur 2.000, á fyrstu skráningu en 1000 kr. eftir það. Við skráningu þarf að gefa upp kennitölu knapa og IS númer hests og grein. Leggja skal skráningargjöld inn á reikning 0161-26-5709 kt. 570909-1340.
Samkvæmt tilkynningu frá skeiðfélaginu hafa nú þegar nokkrir mjög fljótir hestar boðað komu sína. Sölusýning verður strax eftir skeiðkappreiðarnar á Fluguskeiðsvelli.