Knattspyrnudeild Tindastóls óskar eftir aðstoð
Í kvöld er áætlað að koma niður blaðamannahúsi við Sauðárkróksvöll. Það var Friðrik Jónsson ehf. sem sá um smíðina á húsinu fyrir knattspyrnudeildina en nú er komið að því að koma því fyrir á svæðinu.
Steypustöðin er búin að grafa fyrir festingum sem þarf að koma niður á réttan hátt þannig að húsið passi og komist á sinn stað. Kranabíll verður á staðnum til að létta verkið.
-Við höfum fengið góðan aðila til að stýra verkinu en þurfum nokkra velviljaða einstaklinga til að hjálpa okkur við þetta. Þeir sem eru tilbúnir að leggja okkur lið eru beðnir að mæta á völlinn kl. 18:00 í kvöld, segir Ómar Bragi Stefánsson, formaður knattspyrnudeildar Tindastóls