Knattspyrnuveisla um helgina
Stelpurnar í 4. flokki kvenna gerðu sér lítið fyrir og komust í úrslitakeppni Íslandsmótsins en úrslitakeppnin er í tveimur riðlum og eru leikir í riðli tvö hér á Sauðárkróksvelli um helgina.
Fram kemur á heimasíðu Tindastóls að stelpurnar munu leika þrjá leiki og fer fyrsti leikurinn fram núna í dag, föstudag klukkan 16:15, þegar stelpurnar leika gegn Þór.
Á morgun laugardag leika þær síðan í hádegi gegn KR en leikurinn hefst klukkan 12:00. Síðasti leikurinn í gegn Fjölni á sunnudag einnig klukkan 12:00 .
Stuðningsmenn eru hvattir til að fjölmenna á völlinn og styðja stúlkurnar enda hafa stelpurnar verið frábærar í sumar, verið félaginu til mikils sóma og eru til alls líklegar núna um helgina.