Koddaslagur, pallahlaup og fleira skemmtilegt

Björgunarsveitin Húnar er búin að taka saman skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna á sjómannadeginum 3. júní á Hvammstanga. Þar verður m.a. buslað við höfnina, boðið upp á siglingar um Miðfjörð, keppni með fjarstýrðum bílum og einnig verður helgistund við höfnina þar sem minnst verður drukknaðra sjómanna.

Dagsskrá sjómannadagsins 3. júní:

10:00   Busl við höfnina
Koddaslagur , pallahlaup og fleira skemmtilegt.

13:00   Helgistund við höfnina
Sr. Magnús Magnússon og kirkjukór Hvammstanga leiða athöfnina .
Lagður verður blómsveigur að minnisvarða um drukknaða sjómenn að athöfn lokinni og gefandi hans er Kvennaband V-Hún.

Sigling
Að helgistundinni lokinni verður öllum boðið upp á siglingu um Miðfjörð af BBH útgerð og Selasiglingu á Hvammstanga.

14:30   Kaffisala Slysavarnadeildarinnar Káraborgar
Kaffisalan verður að venju í Félagsheimilinu Hvammstanga og ætlar Slysavarnadeildin að afhenda björgunarsveitinni nýjan bát á sama tíma.
Allur ágóði af kaffisölunni í ár rennur til kaupa á nýja bátnum.

17:00   Landsbanka hjólarallýið
Þeir sem fæddir eru 2003 og fyrr mæta við Kirkjuhvammskirkju kl. 16:45 en þeir sem fæddir eru 2004 og síðar mæta við Íþróttamiðstöðina á Hvammstanga.

17:30   Keppni með fjarstýrðum bílum
Keppni með fjarstýrðum bílum í íþróttahúsinu á Hvammstanga fyrir alla aldurshópa.

Fleiri fréttir