Kökubingó á sunnudag
Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður haldið kökubingó í Tjarnarbæ að hætti Léttfetamanna. Sem fyrr rennur allur ágóði til kaupa á eldhústækjum í félagsheimili þeirra.
1000 krónur fyrsta spjald, kaffi og vöfflur í hléi og viðbótar spjald/spjöld á 500 krónur stykkið.
Léttfetafélagar sem og aðrir eru velkomnir en fólki er bent á að hafa með sér pening sem greiðslumiðil þar sem kort eru ekki tekin.