Komnir aftur upp í A-riðil
Drengirnir í 10. flokki körfuknattleiksdeildar Tindastóls eru komnir aftur upp í A-riðil eftir að þeir sigruðu alla leikina í annarri umferð í B-riðli á Íslandsmótinu, á Borgarnesi um sl. helgi.
Á heimasíðu Tindastóls segir að strákarnir hafi tapað öllum sínum leikjum í fyrstu umferðinni í A-riðli en það mót var haldið á sama tíma og árlega dansmaraþon 10. bekkjar og strákarnir því örþreyttir eftir að hafa dansað í heilan sólarhring.
Nú er staðan hins vegar önnur og Tindastólsmenn unnu alla andstæðinga sína og fóru þar með aftur upp í A-riðil.
Úrslit leikja
- Tindastóll - Fjölnir A 78-70
- Tindastóll - Fjölnir B 69-47
- Tindastóll - Breiðablik 74-43
- Tindastóll - Skallagrímur 68-44
Stigaskorið á milli leikmanna á mótinu: Pétur 74, Viðar 41, Finnbogi 29, Kristinn 28, Bjarni 28, Hannes 22, Haukur 16, Sigurður Óli 8, Ingi Sveinn 8, Friðrik 8, Ágúst 7, Elvar 8, Sighvatur 4 og Óli Björn 2.
Nýr leikmaður hefur bæst í hópinn, Hannes Másson og kemur frá Hvammstanga. Á vef Tindastól segir að hann sé sonur Más Hermannssonar, sem þótti og þykir jafnvel enn, liðtækur í boltanum. Hannes hefur mætt á nokkrar æfingar með Tindastóli og að sögn Kára Maríssonar hefur hann smollið vel inn í hópinn.
Strákarnir taka svo á móti Njarðvíkingum nk. laugardag í 16-liða úrslitum.